Teppið hennar Magdalenu
Það er svo ótrúlega gott að eiga mjúkt teppi til að nota fyrir barnið sitt. Þetta teppi varð til þegar von var á einni ömmustelpunni. Hún kom svo í heiminn 22.01 2022 og var vafin inn í hlýtt og mjúkt ömmuteppi.
5 mars 2022 fékk hún svo nafnið sitt: Magdalena Ösp
Teppið er með fallegu gatamunstri og garðaprjónsköntum. Þú getur aðeins ráðið stærðinni ef þú vilt með því að bæta við einni munsturmynd á breidd og þar með leikið þér með garn líka. Margir vilja frekar nota fínna garn í barnateppin en athugaðu að stærðin á þessu teppi miðast við uppgefið garn og prjónastærð.
Ummál í cm: sirka 75x80
Tillögur að garni: Sandnes merinoull
Magn í gr: 550 til 600 gr
Prjónafesta: 20/10 á prjóna nr. 4
Þú þarft að nota langan hringprjón númer 4, mæli með 80 cm prjóni.
Á myndum er líka kjóll með sama munstri , kjóllinn heitir Ösp og er seldur sér
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .