Regn, húfa

  • 750 ISK kr
VSK innifalin í verði


Einföld og þægileg húfa prjónuð með stroffi, þessi sívinsæla húfa sem passar við allt. Hvað er hægt að segja um það?

Húfan er prjónuð í hring neðan frá og upp. Húfan er prjónuð með sléttum og brugðnum lykkjum sem gerir að hún passar á nokkuð breiðan aldurshóp ef það er passað upp á lengdina. Húfan er frekar teygjanleg þar sem hún er í svokölluðu stroff prjóni

Stærð:                    3ja mán til 2ja ára, 2 til 10 ára, fullorðins

Ummál í cm.          Passar höfuðmáli 40 – 46/ 45 – 53/ 50 - 60

Lengd í cm.            25, 27, 31 til 33

Tillögur að garni:    Peruvian ull frá Filcolana  , fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun www.garnigangi.is 

Magn í gr:              100 gr í allar stærðir

Prjónafesta:           17 til 18/10 á prjóna nr. 4

 

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með