Hraun barnahúfa

  • 750 ISK kr
VSK innifalin í verði


Bara þessi venjulega stroff húfa sem er svo vinsæl. Flott við Hraun barnapeysu og ómissandi við settið allt. Gott lag á henni og fljótprjónuð, hlý fyrir veturinn

Húfan er prjónuð með stroffi , þ.e. sléttum og brugðnum lykkjum, sem gefur alltaf eftir. Húfan getur því passað lengi. Mér finnst ekkert must að hafa eyru á þessari húfu og gerði ekki ráð fyrir þeim, en auðvitað er lítið mál að bæta þeim við ef áhugi er á því. Annars er hún svaka flott og passar vel á litla kolla. Amalía ömmukrútt passar fínt í minnstu stærðina, þegar hún var 8 mánaða.

Stærð:                    6 mán til 18 mán, 2 til 4 ára, 4 til 6 ára, 6 til 10 ára

Ummál í cm:          30, 35, 40, 45 ( óteygð)

Tillögur að garni:    Sandnes merinoull, eða annað sambærilegt garn.

Magn í gr:              2 dokkur í allar stærðir

Prjónafesta:           20/10 á prjóna nr. 4

Þú þarft að nota hringprjón og sokkaprjóna nr. 4, lítinn hringprjón númer 3.5 í stroffið. prjónamerki og nál til frágangs.

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .

Ef þér hentar ekki að greiða með korti þá er að sjálfsögðu hægt að millifæra með því að velja þann möguleika í ferlinu. Mundu bara að senda mér kvittun svo þetta gangi allt hratt og vel fyrir sig.


Við mælum með