Hraun fyrir hann
Að sjálfsögðu verð ég við því sem kúnnarnir vilja. Hraun herrapeysa er eitthvað sem er búið að biðja um í smá tíma. Pabbar vilja vera eins og gormar líka, annað er ekki sanngjarnt.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með hálfum kraga og ermum í strofflúkki. Annars einföld og auðveld í vinnslu. Það eru stuttar umferðir í hálmálinu rétt til að fá fallegra lag á peysuna og að kraginn komi betur út. Þær eru prjónaðar fram og til baka en eftir það er peysan prjónuð í hring.
Prjónafestan miðast miðast við uppgefið garn og ummál af tilbúinni flík.
Stærð: S, M, L, XL, 2XL
Ummál í cm: 107, 110, 113, 120, 127
Tillögur að garni: Peruvian ull frá filcolana, fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun www.garnigangi.is
Magn í gr: 500, 550, 600, 650, 700
Prjónafesta: 18/10 á prjóna nr. 5.
Þú þarft að nota hringprjóna nr. 4,5 og 5, gott að eiga lítinn hringprjón í ermarnar. Sokkaprjóna 4,5
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .