Frost vettlingar

  • 650 ISK kr
VSK innifalin í verði


Vettlingar eru algjörlega nauðsynleg viðbót í Frost línu. Þessir eru reyndar bara flottir og fljótlegir og gott að eiga í fataskápnum með útifötunum.

Frost vettlingar eru þessir beisikk venjulegu vettlingar sem passa við allt . Nokkuð sætir bara, háir upp og góðir undir pollavettlinga. Pernilla garnið er ullargarn sem hentar vel í þessa uppskrift. Á minnstu stærðinni er alveg hægt að sleppa þumli ef þú ert að prjóna á lítið skott yngri en 1 árs 😊

Stærð:                    0 til 12 mán, 1 til 2 ára, 2 til 3 ára, 4 til 6 ára

Tillögur að garni:    Pernilla frá Filcolana. Garnið fæst hjá Garn í gangi eða í netverslun  www.garnigangi.is

Magn í gr:              50 gr eða ein dokka.

Prjónafesta:           23/10 á prjóna nr. 3.5

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með