Jökull, ungbarnasett
Mikilvægir fylgihlutir til að halda hita á minnsta fólkinu okkar.
Settið samanstendur af hefðbundinni hjálmhúfu sem er þrátt fyrir garðaprjón, prjónuð í hring og kollurinn saumaður, prjónaður eða lykkjaður saman eftir á.
Sokkar og vettlingar, einnig prjónað með garðaprjóni svo það verði þykkt og hlýtt. Einfalt og fljótlegt að prjóna . Það er ekki gert ráð fyrir þumli á vettlingana.
Ég mæli með mjúku garni í settið eins og uppgefnu garni sem er 100% merinoull. Unnin á þann hátt sem skaðar ekki náttúruna, garnið er mjög mjúkt og hentar því ákaflega vel í ungbarnaföt.
Stærð: Húfan, 0, 1 til 3 mánaða, 3 til 6 mánaða. Sokkar og vettlingar koma í tveimur stærðum. 0 til 2ja mán, 3 til 6 mánaða
Ummál í cm: Sjá í hverjum hluta uppskriftar
Tillögur að garni: Kremke merry merino, 140 . Garnið fæst hjá www.rendur.is
Magn í gr: 100, 120
Prjónafesta: 24/10 á prjóna nr. 3.5
Þú þarft að nota lítinn hringprjón í húfu og sokkaprjóna nr. 3.5 í vettlinga og sokka
Ég vil benda á að það er einnig hægt að greiða pöntun með millifærslu á reikning en þá þarf að muna að senda mér kvittun úr heimabanka
Reikningsupplýsingar : 0123 - 26 - 201091 og Kennitala: 010865 - 3369
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .