Aðalvík Herrapeysa

  • 1.150 ISK kr
VSK innifalin í verði


Skemmtileg „duggara peysa“ sem fékk nafnið Aðalvík! Þetta er fjórða og seinasta útgáfan en fyrir eru til uppskrift af krakka, ungbarna og dömupeysu.

Peysan er prjónuð ofan frá og niður með útaukningu í laska og mismunandi munsturbekkjum sem samanstanda af sléttum og brugðnum lykkjum. Fyrirmyndin er þessi hefðbundna „duggarapeysa“ eða gansey sweater sem eru peysur notaðar af breskum sjómönnum. Peysan er ekki erfið í vinnslu og ætti því að henta þeim sem eru að byrja að prjóna og geta lesið úr munsturmynd. Svo er alveg ferlega gaman að prjóna hana þar sem þú ert aldrei að gera eins munstur 😊

Ég mæli með uppgefnu garni sem er non superwash garn, unnið á þann hátt sem skaðar ekki umhverfið. Það er 100% merinoull og kemur svo fallega út í svona munsturprjóni. Ef þú ákveður að nota annað garn, gæti munstur komið öðruvísi út, málin orðið önnur eða magnið sem þú þarft orðið annað.

Stærð:                    XS, S, M, L, XL, 2XL, 3XL

Ummál í cm:          95, 98, 105, 110, 117, 123, 130 ( umfram vídd ca 8 til 10 cm, tekur mál undir höndum)

Tillögur að garni:    Dala merino 22 eða Kind merinoull, garnið er nýtt á markaði og fæst hjá www.prjónaklubburinn.is.

Magn í gr:              550, 600, 650, 650, 700, 750, 800

Prjónafesta:           22/10 á prjóna nr. 4

Þú þarft að nota hringprjóna og sokkaprjóna nr. 3,5 og 4, lítinn hringprjón nr. 3 í hálmálið, prjónamerki og nál til frágangs.


Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með