CHUNKYDÖMUPEYSA
Höfundur uppskriftar: Hafdís Björg
Auðvita þurfa mömmurnar að geta verið í stíl við krílin sín. Geggjuð í útileguna, skíðin eða bara til að vera í kósý heima
Stærðir: XS, (S), M, (L), XL, (2XL), 3XL.
Ummál í cm: 92, (98), 105, (110), 120, (129), 138.
Tillögur að garni: Puno frá Rauma.
Magn í gr: 350, (350), 400, (400), 450, (500), 550.
Prjónafesta: 13/10 á prjón nr. 7.
Þú þarft hringprjón nr. 6 og 7 , sokkaprjóna nr. 6 og 7, prjónamerki(PM) og nál til frágangs.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með laskaermum og stroffi. Peysan er einföld, fljótleg og hentar vel fyrir byrjendur sem og lengra komna. Málin í þessari uppskrift eru reiknuð út frá prjónafestu sem gefin er upp á garninu. Ég mæli einnig með að taka mál af verðandi eiganda peysunnar.