Líf, rompur
Ein dásemdin enn í Líf línunni minni sem mér þykir svo afskaplega vænt um. Rompur, smekkbuxur, samfella eða hvað við viljum kalla þessa flík, er svo dásamlega falleg á þessi litlu kríli.
Buxurnar eru prjónaðar neðan frá, fyrst bak og framstykki sem er síðan sameinað. Það eru stuttar umferðir á bossanum og bakið prjónað upp líka. Munstrið með litlu köðlunum er framan á buxunum
Ummál eru reiknuð út frá prjónafestu á uppgefnu garni og ummálið er á tilbúinni flík.
Stærð: 1 til 3 mán, 3 til 6 mán, 6 til 9 mán, 9 til 12 mán og 12 til18 mán
Ummál í cm: 42, 44, 46, 48, 50
Tillögur að garni: Dala Lille lerki, garnið fæst meðal annars í netverslun www.prjonaklubburinn.is
Magn í gr: 100, 100, 100, 150, 150. (Ath. Þessi minnsta var 56 gr hjá mér þannig að ein og smá afgangur mundi duga ef þú átt 😊)
Prjónafesta: 26/10 á prjóna nr. 3
Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis. Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað.
Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .
Athugið að þessi uppskrift inniheldur eingöngu buxurnar þó myndir sýni fleiri vörur úr Líf línu.