Mía bleyjubuxur

  • 950 ISK kr
VSK innifalin í verði


Sætar bleyjubuxur, víðar og smá pokalag á þeim. Kallaðar Bloomers hér í Noregi en höldum okkur bara við bleyjubuxur. Þær eru einfaldar og hægt að gera í ýmsum útgáfum, með því að sleppa pífu, setja pífu á skálmar eða í mittið, nú eða bæði. Geggjað að eiga allar útgáfur auðvitað.

Málin í uppskriftinni eru reiknuð út frá prjónafestu, sem er gefin upp á garninu. Það er hvernig þú kæri prjónari vinnur með garnið. 

Stærð:                    1 til 3ja mán, 3 til 6 mán, 6 til 12 mán, 12 til 18 mán, 18 til 24 mán.

Ummál í cm:          50, 53, 57,59, 63

Tillögur að garni:    Dala Lille lerki

Magn í gr:              50, 100, 100, 100, 100

Prjónafesta:           24/10 á prjóna nr. 3,5

 

 

Uppskriftin berst á rafrænu formi eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd. Þú færð senda slóð, sem vísar á síðu og þar er hægt að hlaða uppskriftinni niður samstundis.  Ég mæli með að þú vistir hana á góðum stað. 

Stundum lendir þessi póstur í spam eða rusli, svo endilega athugaðu þar .


Við mælum með